15. desember
Útlit
Nóv – Desember – Jan | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 | ||||
2024 Allir dagar |
15. desember er 349. dagur ársins (350. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 16 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]- 687 - Sergíus varð páfi.
- 1025 - Konstantín 8. varð keisari Austrómverska keisaradæmisins.
- 1256 - Húlagú Kan hertók og lagði í rúst fjallavirki Hassassína, Alamút.
- 1607 - Gísli Oddsson ritaði um halastjörnu sem síðar varð þekkt sem halastjarna Halleys.
- 1788 - Fyrstu forsetakosningar í Bandaríkjunum hófust og lauk 10. janúar árið eftir.
- 1791 - Fyrstu tíu viðaukar bandarísku stjórnarskrárinnar tóku gildi.
- 1888 - Glímufélagið Ármann var stofnað á Íslandi.
- 1893 - Ríkisstjórnarskipti á Ítalíu: þriðja ríkisstjórn Crispis tók við af fyrstu ríkisstjórn Giolittis.
- 1953 - Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri var tekið í notkun.
- 1953 - Þverárvirkjun var gangsett.
- 1961 - Ísraelskur str��ðsglæpadómstóll dæmdi Adolf Eichmann til dauða fyrir þátttökuna í helförinni.
- 1963 - Jórdanska flugfélagið Royal Jordanian var stofnað.
- 1970 - Sovéska geimfarið Venera 7 lenti á Venusi og sendi þaðan gögn til jarðar.
- 1972 - Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna var stofnuð.
- 1973 - Bandarísku geðlæknasamtökin tóku samkynhneigð út af lista yfir geðraskanir.
- 1976 - Líberíska olíuskipið MV Argo Merchant strandaði við Nantucket og brotnaði svo að 30 milljón lítrar af olíu láku í sjóinn.
- 1977 - Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar (IFAD) stofnaður. Er ein sérstofnana Sameinuðu þjóðirnar|Sameinuðu þjóðanna]].
- 1978 - Kvikmyndin Superman var frumsýnd.
- 1979 - Davíð Scheving Thorsteinsson keypti bjór í fríhöfninni við komu til landsins, en var meinað að hafa hann með sér. Þetta leiddi til rýmkunar á reglum um kaup á bjór í fríhöfninni.
- 1979 - Kanadamennirnir Chris Haney og Scott Abbott fundu upp spurningaspilið Trivial Pursuit.
- 1981 - Sendiráð Íraks í Beirút eyðilagðist í bílsprengju. Sýrlandi var kennt um sprenginguna.
- 1989 - Eiturlyfjabaróninn José Gonzalo Rodríguez Gacha var drepinn af kólumbísku lögreglunni.
- 1991 - Yfir 450 fórust þegar egypska ferjan Salem Express fórst í Rauðahafi.
- 1992 - Mani pulite: Bettino Craxi, aðalritari ítalska sósíalistaflokksins, fékk dómskvaðningu fyrir spillingu og brot gegn lögum um fjármögnun stjórnmálaflokka.
- 1992 - Fyrsta plata Dr. Dre, The Chronic, kom út í Bandaríkjunum.
- 1993 - Bandaríska kvikmyndin Listi Schindlers var frumsýnd.
- 1994 - Fyrsta útgáfa vafrans Netscape Navigator kom út.
- 1995 - Dæmt var í máli belgíska atvinnuknattspyrnumannsins Jean-Marcs Bosmans.
- 1995 - Innleiðing evrunnar sem almenns gjaldmiðils var ákveðin á fundi í Madríd.
- 1997 - Nelson Mandela sagði af sér sem leiðtogi Afríska þjóðarráðsins.
- 2000 - Þriðja og síðasta kjarnakljúfi Tsjernóbýlkjarnorkuversins var lokað.
- 2001 - Skakki turninn í Písa var opnaður almenningi eftir 11 ára viðgerðir.
- 2003 - Íslenska kvikmyndin Stella í framboði var frumsýnd.
- 2004 - Bobby Fischer fékk landvistarleyfi á Íslandi.
- 2004 - Íslenska ríkið keypti tíu þúsund skopteikningar eftir Sigmund Johanson Baldvinsen sem áður höfðu birst í Morgunblaðinu.
- 2009 - Fyrsta tilraunaflug Boeing 787-breiðþotunnar fór fram.
- 2011 - Bandaríkin lýstu formlega yfir stríðslokum í Íraksstríðinu.
- 2013 - Borgarastyrjöldin í Suður-Súdan hófst með átökum milli Núera og Dinka í Júba.
- 2015 - Hernaðarbandalag íslamskra ríkja gegn hryðjuverkum var stofnað.
- 2018 - Nærri 200 ríki heims samþykktu reglur fyrir útfærslu Parísarsamþykktarinnar á loftslagsráðstefnu í Katovice.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 37 - Neró, Rómarkeisari (d. 68).
- 130 - Lucius Verus, Rómarkeisari (d. 169).
- 1634 - Thomas Kingo, danskt sálmaskáld (d. 1703).
- 1734 - George Romney, enskur málari (d. 1802).
- 1810 - Peter Andreas Munch, norskur sagnfræðingur (d. 1863).
- 1832 - Gustave Eiffel, franskur verkfræðingur (d. 1923).
- 1852 - Henri Becquerel, franskur eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1908).
- 1860 - Niels Ryberg Finsen, læknir og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1904).
- 1861 - Pehr Evind Svinhufvud, forseti Finnlands (d. 1944).
- 1903 - Aatami Kuortti, ingrískur prestur (d. 1997).
- 1906 - Edmond Debeaumarché, franskur andspyrnumaður (d. 1959).
- 1907 - Oscar Niemeyer, brasiliskur arkitekt (d. 2012).
- 1916 - Maurice Wilkins, breskur eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 2004).
- 1931 - Klaus Rifbjerg, danskur rithöfundur (d. 2015).
- 1952 - Yukitaka Omi, japanskur knattspyrnumaður.
- 1953 - Herbert Guðmundsson, íslenskur tónlistarmaður.
- 1960 - Irma Boom, hollenskur hönnuður.
- 1963 - Cristiana Oliveira, brasilísk leikkona.
- 1970 - Michael Shanks, kanadískur leikari.
- 1970 - Katla Margrét Þorgeirsdóttir, íslensk leikkona.
- 1971 - Milena Miconi, ítölsk leikkona.
- 1973 - Gísli Örn Garðarsson, íslenskur leikari.
- 1980 - Annalena Baerbock, þýsk stjórnmálakona.
- 1983 - Zlatan Ljubijankić, slóvenskur knattspyrnumaður.
- 1984 - Ragnheiður Gröndal, íslensk söngkona.
- 1987 - Yosuke Kashiwagi, japanskur knattspyrnumaður.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 1263 - Hákon gamli, Noregskonungur (f. 1204).
- 1467 - Jöns Bengtsson Oxenstierna, erkibiskup í Svíþjóð (f. um 1417).
- 1673 - Margaret Cavendish, enskur rithöfundur (f. 1623).
- 1675 - Johannes Vermeer, hollenskur listmálari (f. 1632).
- 1677 - Þorkell Arngrímsson, læknir og prestur í Görðum á Álftanesi (f. 1629).
- 1890 - Sitjandi Naut, indíánahöfðingi (f. um 1831).
- 1893 - Philip W. Heyman, danskur athafnamaður (f. 1837).
- 1916 - Þórhallur Bjarnarson biskup (f. 1855).
- 1950 - Vallabhbhai Patel, indverskur stjórnmálamaður (f. 1875).
- 1966 - Walt Disney, bandarískur teiknimyndaframleiðandi (f. 1901).
- 1994 - Sigurður H. Pétursson, íslenskur gerlafræðingur (f. 1907).
- 1999 - Ármann Kr. Einarsson, íslenskur rithöfundur (f. 1915).
- 2004 - Guðmundur E. Sigvaldason, íslenskur jarðfræðingur (f. 1932).
- 2008 - Anne-Cath.Vestly, norskur barnabókahöfundur (f. 1920).
- 2013 - Joan Fontaine, bandarísk leikkona (f. 1917).
Hátíðis- og tyllidagar
[breyta | breyta frumkóða]- Samkvæmt kvæði Jóhannesar úr Kötlum, „Jólin koma“ kemur jólasveinninn Þvörusleikir til byggða þennan dag.