Kafbátur
Útlit

Kafbátur er bátur sem er byggður þannig að hann getur farið í kaf og siglt í kafi í lengri tíma. Kafbátar eru notaðir af öllum helstu flotum heims og við rannsóknir neðansjávar. Kjarnorkuknúnir kafbátar geta dvalið lengi neðansjávar. Ómannaðir rannsóknarkafbátar geta kafað á meira dýpi en mannaðir. Sumar tegundir kafbáta geta verið í kafi í allt að h��lft ár í einu. Sjónpípan, sem hægt er að skjóta upp þegar kafbátur marar í kafi, og er til að sjá upp fyrir yfirborð sjávar (til óvina) er nefnd hringsjá (eða kringsjá).
Gavia er ómannaður smákafbátur til neðansjávarrannsókna hannaður af Hafmynd ehf.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Uboat.net
- Gavia - Hafmynd ehf Geymt 9 febrúar 2007 í Wayback Machine
- Kafbátahernaðurinn; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1928

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist kafbátum.