Han Kang
Fædd: | 27. nóvember 1970 Gwangju, Suður-Kóreu |
---|---|
Starf/staða: | Rithöfundur |
Þjóðerni: | Suður-kóresk |
Þekktasta verk: | Grænmetisætan (2007) |
Undirskrift: | |
Heimasíða: | www |
Han Kang (f. 27. nóvember 1970) er suður-kóreskur rithöfundur sem er þekktust fyrir skáldsöguna Grænmetisætuna, sem fjallar um geðröskun kóreskrar húsmóður og vanrækslu fjölskyldu hennar á henni. Árið 2016 varð ensk þýðing bókarinnar fyrsta kóreska bókin til að vinna alþjóðlegu Man Booker-verðlaunin.
Árið 2024 vann Han Kang Nóbelsverðlaunin í bókmenntum, fyrst Kóreumanna, fyrir „ákafan ljóðrænan prósa sem tekur á sögulegum áföllum og afhjúpar viðkvæmni mannlífsins“.[1]
Han Kang er fædd árið 1970 í Gwangju og er dóttir rithöfundarins Han Seung-won.[2] Kang flutti með fjölskyldu sinni til Seúl þegar hún var níu ára. Hún hóf feril í bókmenntum árið 1994 þegar hún gaf út ljóð í tímaritinu Bókmenntum og samfélagi (문학과사회). Árið 1995 gaf hún út smásagnasafnið Ástin á Yeosu (여수의 사) og síðan nokkrar skáldsögur og smásögur.[3] Þekktasta bók Kang, Grænmetisætan, kom út árið 2007 en vakti þó ekki athygli fyrr en nokkru seinna.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Silja Björk Huldudóttir (10. október 2024). „Han Kang hlýtur Nóbelinn í bókmenntum“. mbl.is. Sótt 10. október 2024.
- ↑ „Han Kang fékk nóbelsverðlaunin í bókmenntum“. DV. 10. október 2024. Sótt 10. október 2024.
- ↑ Anna María Björnsdóttir (10. október 2024). „Han Kang hlýtur Nóbelsverðlaun bókmennta 2024“. RÚV. Sótt 10. október 2024.
- ↑ Magnús Guðmundsson (8. september 2017). „Mér finnst að manneskjur ættu að vera plöntur“. Vísir. Sótt 10. október 2024.