Auyuittuq-þjóðgarðurinn
Útlit
Auyuittuq-þjóðgarðurinn (inúktitút: ᐊᐅᔪᐃᑦᑐᖅ „eyjan sem bráðnar aldrei“, enska: Auyuittuq National Park) er þjóðgarður á Cumberland-skaga á austur-Baffinslandi í Núnavút í Kanada. Þjóðgarðurinn var stofnaður árið 1976 sem verndarsvæði en varð þjóðgarður árið 2000. Hann er rúmir 19.000 ferkílómetrar.
Í náttúru svæðisins eru miklar freðmýrar, firðir og jöklar. Tólf tegundir spendýra finnast á svæðinu, t.d. ísbirnir, selir, refir, snæhérar, hreindýr, úlfar og læmingjar. Þórsfjall, Óðinsfjall og Ásgarðsfjall eru þverhnípt fjöll á svæðinu. Þeir sem vilja heimsækja svæðið þurfa að fara í gegnum bæina Qikiqtarjuaq eða Pangnirtung og sækja um leyfi.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Auyuittuq-þjóðgarðurinn.
Fyrirmynd greinarinnar var „Auyuittuq National Park“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 9. jan. 2017.