Bas van Fraassen
Útlit
Bastiaan Cornelis van Fraassen (fæddur 5. apríl 1941 í Goes Hollandi) er prófessor við San Francisco-háskóla þar sem hann kennir áfanga í vísindaheimspeki, rökgreiningarheimspeki og í notkun módela í vísindalegri nálgun.[1][2] Hann hefur áður kennt við meðal annars Yale og Princeton-háskóla. Bas van Frassen er upphafsmaður hugtaksins „uppbyggileg raunhyggja“ sem hann kynnti í bók sinni frá 1980 The Scientific Image, þar sem hann færir rök fyrir efasemdahyggju gagnvart raunveruleika eininga sem ekki er hægt að sjá. Van Fraassen er með BA-gráðu frá Alberta-háskóla ásamt MA- og doktors gráðum frá Pittsburgh-háskóla.
Nokkur verk Bas van Fraassen
- Scientific Representation: Paradoxes of Perspective, OUP, 2008.
- Possibilities and Paradox (with JC Beall), OUP, 2003.
- The Empirical Stance, Yale University Press, 2002.
- Quantum Mechanics: An Empiricist View, Oxford University Press, 1991.
- Laws and Symmetry, Oxford University Press 1989.
- The Scientific Image, Oxford University Press 1980.
- Derivation and Counterexample: An Introduction to Philosophical Logic (with Karel Lambert), Dickenson Publishing Company, Inc. 1972.
- Formal Semantics and Logic, Macmillan, New York 1971
- An Introduction to the Philosophy of Time and Space, Random House, New York 1970.
Tilvísanir
- ↑ „SF State News at SFSU“. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. júní 2012. Sótt 13. mars 2013.
- ↑ „SF State Campus Memo: New tenure-track faculty 2008-09“. Afrit af upprunalegu geymt þann 9. mars 2012. Sótt 13. mars 2013.
Heimildir
- Fyrirmynd greinarinnar var „Bas van Fraassen“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. mars 2013.