Fara í innihald

Steven Hooker

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Steve Hooker

Steven Hooker (fæddur 16. júlí 1982 í Melbourne) er ástralskur stangarstökkvari og núverandi ólympíumeistari í greininni. Hans besti árangur eru 6,00 metrar en því náði hann 27. janúar 2008 í Perth. Komst hann þannig upp að hlið Paul Burgess sem næst besti stangarstökkvari Ástralíu, eftir Dmitri Markov.[1]

Á Ólympíuleikunum 2008 vann Steven Hooker gullverðlaun og setti nýtt ólympíumet með hæðinni 5,96 metrar.

Erica Hooker, móðir hans, keppti á ólympíuleikunum 1972 og hlaut silfurverðlaun á Samveldisleikunum 1978 í langstökki. Þá á hún 9 Ástralíutitla í greininni. Faðir Steven, Bill var í boðhlaupssveit Ástralíu á Samveldisleikunum 1978 (4x400m karla) og einnig í 800 metra hlaupi. Auk þess vann hann 4 Ástralíutitla.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Hooker joins exclusive 6.00m vault club“. iaaf.org. 27. janúar 2008.