Fara í innihald

Róbinson Krúsó

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Titilsíða fyrst útgáfu bókarinnar frá 1719.

Róbinson Krúsó er skáldsaga eftir enska rithöfundinn og blaðamanninn Daniel Defoe. Hún kom fyrst út 25. apríl 1719. Í fyrstu útgáfunni er aðalsöguhetjan sögð höfundur sem varð til þess að margir lesendur töldu að um sanna ferðasögu væri að ræða.[1]

Sagan er ævisöguleg frásögn aðalsöguhetjunnar (sem upphaflega heitir Robinson Kreutznaer) sem lendir í skipbroti og hefst við á fjarlægri eyðieyju í nágrenni Trinídad í 28 ár. Þar kemst hann í tæri við mannætur, fanga og uppreisnarmenn áður en honum er bjargað. Sagan er talin vera byggð á sögu skoska skipbrotsmannsins Alexanders Selkirk sem hafðist við á eyju í Kyrrahafi í fjögur ár. Saga hans naut mikilla vinsælda eftir að hún kom út árið 1712.[2]: 23–24 [3]

Skáldsögu Defoes var vel tekið og hún átti þátt í að ryðja raunsæju skáldsögunni braut sem bókmenntagrein. Hún er oft talin fyrsta skáldsagan á ensku, sérstaklega eftir að breski gagnrýnandinn Ian Watt gaf út bókina The Rise of the Novel árið 1957.[4][5]

  1. Heitman, Danny (11 janúar 2013). „Fiction as authentic as fact“. Wall Street Journal. Afrit af uppruna á 2 ágúst 2017. Sótt 8 ágúst 2017.
  2. Severin, Tim (2002). In Search of Robinson Crusoe. New York, NY: Basic Books. ISBN 0-465-07698-X.
  3. „Rescue of Real-Life Robinson Crusoe“. education.nationalgeographic.org (enska). Sótt 6. september 2023.
  4. Reeves, Margaret (Fall 2000). „Telling the Tale of the Rise of the Novel“. CLIO. 30 (1). Fort Wayne, Indiana: Purdue University: 25–49. Sótt 30. desember 2024. Gale Academic
  5. Drabble, Margaret, ritstjóri (1996). „Defoe“. The Oxford Companion to English Literature. Oxford, UK: Oxford University Press. bls. 265.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.