Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lawrence Robert Klein (14. september 1920 – 20. október 2013) var bandarískur hagfræðingur. Klein er þekktur fyrir framlög sín til Keynsískrar hagfræði, hagmælinga (econometrics) og þróunar efnahagslíkana. Klein hlaut nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 1980 fyrir framlög sín til hagmælinga.
Klein fæddist í Omaha, Nebraska árið 1920. Landbúnaðarkreppa þriðja áratugarins í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna, og heimskreppa fjórða áratugarins höfðu mikil áhrif á Klein og kveiktu áhuga hans á hagfræði. Klein lagði stund á hagfræði og stærðfræði við Berkeley háskóla í Kaliforníu og lauk doktorsprófi í hagfræði við Massachusetts Institute of Technology (MIT) árið 1944. Klein var fyrsti doktorsnemi Paul A. Samuelson. Eftir útskrift starfaði hann frá við Cowles-rannsóknarmiðstöðina í Chicago þar sem hann þróaði líkön af bandaríska hagkerfinu og áhrifum hagstjórnarákvarðana.
Á stríðsárunum var Klein um skeið meðlimur bandaríska kommúnistaflokksins og flúði hann land meðan kommúnista ofsóknir McCarthy stóðu sem hæst. Dvaldi hann á árunum 1954-58 í Oxford í Englandi. Eftir heimkomu var hann skipaður prófessor við háskóla Pennsylvaníu þar sem hann starfaði næstu þrjá áratugi. Klein var einn af efnahagsráðgjöfum Jimmy Carter í kosningunum 1976, en tók ekki sæti í ríkisstjórn Carter.
Klein vakti athygli fyrir að hafa spáð réttilega fyrir um efnahagsleg áhrif endaloka seinni heimsstyrjaldarinnar. Meðan aðrir hagfræðingar spáðu því að stríðslokum myndi fylgja kreppa, þar sem eftirspurn eftir hergögnum drægist saman, spáði Klein því að heimkoma hermanna af vígstöðvunum myndi leiða til hagvaxtar sem knúinn væri áfram af aukinni einkaneyslu.
Klein er þekktastur fyrir tölfræðilíkan, sem nefnt hefur verið Wharton-líkanið (enska Wharton Econometric Forecasting Model). Líkanið er enn notað, til að spá fyrir um efnahagsleg umsvif eins og verga þjóðarframleiðslu, útflutning, fjárfestingu og neyslu, og áhrif breytinga á skattlagningu, opinberum útgjöldum, olíuverði o.fl.
|
---|
Ragnar Frisch og Jan Tinbergen (1969) • Paul A. Samuelson (1970) • Simon Kuznets (1971) • John R. Hicks og Kenneth J. Arrow (1972) • Wassily Leontief (1973) • Gunnar Myrdal og Friedrich August von Hayek (1974) • Leoníd Vítaljevítsj Kantorovítsj og Tjalling C. Koopmans (1975) • Milton Friedman (1976) • Bertil Ohlin og James E. Meade (1977) • Herbert A. Simon (1978) • Theodore W. Schultz og Arthur Lewis (1979) • Lawrence R. Klein (1980) • James Tobin (1981) • George J. Stigler (1982) • Gerard Debreu (1983) • Richard Stone (1984) • Franco Modigliani (1985) • James M. Buchanan (1986) • Robert M. Solow (1987) • Maurice Allais (1988) • Trygve Haavelmo (1989) • Harry M. Markowitz, Merton H. Miller og William F. Sharpe (1990) • Ronald Coase (1991) • Gary Becker (1992) • Robert W. Fogel og Douglass C. North (1993) • John C. Harsanyi, John Forbes Nash og Reinhard Selten (1994) • Robert E. Lucas yngri (1995) • James A. Mirrlees og William Vickrey (1996) • Robert C. Merton og Myron S. Scholes (1997) • Amartya Sen (1998) • Robert A. Mundell (1999) • James J. Heckman og Daniel L. McFadden (2000) • George A. Akerlof, Andrew Michael Spence og Joseph E. Stiglitz (2001) • Daniel Kahneman og Vernon L. Smith (2002) • Robert F. Engle og Clive W.J. Granger (2003) • Finn E. Kydland og Edward C. Prescott (2004) • Robert Aumann og Thomas Schelling (2005) • Edmund S. Phelps (2006) • Leonid Hurwicz, Eric S. Maskin og Roger B. Myerson (2007) • Paul Krugman (2008) • Elinor Ostrom og Oliver E. Williamson (2009) • Peter A. Diamond, Dale T. Mortensen og Christopher A. Pissarides (2010) • Thomas J. Sargent og Christopher A. Sims (2011) • Alvin Roth og Lloyd Shapley (2012) • Eugene Fama, Robert J. Shiller og Lars Peter Hansen (2013) • Jean Tirole (2014) • Angus Deaton (2015) • Oliver Hart og Bengt Holmström (2016) • Richard Thaler (2017) • William Nordhaus og Paul Romer (2018) • Abhijit Banerjee, Esther Duflo og Michael Kremer (2019) • Paul Milgrom og Robert Wilson (2020) • David Card, Joshua Angrist og Guido Imbens (2021) • Ben Bernanke, Douglas Diamond og Philip Dybvig (2022) • Claudia Goldin (2023) • Daron Acemoglu, Simon Johnson og James A. Robinson (2024) |