Lýsistrata
Útlit
Lýsistrata (á forngrísku: Λυσιστράτα (Lysistrata); á latínu: Lysistrata) er gamanleikur eftir forngríska gamanleikjaskáldið Aristófanes. Titill verksins þýðir „sú sem leysir upp her“. Leikritið var fyrst sett á svið í Aþenu árið 411 f.Kr.
Í leikritinu sannfærir Lýsistrata konur Grikklands um að neita körlum sínum um kynlíf til að neyða þá til að semja frið í Pelópsskagastríðinu. Uppátækið veldur mikilli togstreitu milli kynjanna.
Varðveitt verk Aristófanesar
Akarníumenn | Riddararnir | Skýin | Vespurnar | Friðurinn | Fuglarnir | Lýsistrata | Konur á Þesmófóruhátíð | Froskarnir | Þingkonurnar | Auðurinn
|
---|