John Chadwick
Útlit
John Chadwick (21. maí 1920 – 24. nóvember 1998) var enskur fornfræðingur, textafræðingur og málvísindamaður sem er einkum frægur fyrir að hafa ásamt Michael Ventris ráðið línuletur B á árunum 1951-1953. Hann kenndi fornfræði við Cambridge-háskóla frá 1952 og hóf það sama ár samvinnu við Ventris um að ráða línuletur B. Afrakstur rannsókna þeirra birtist í bók þeirra Documents in Mycenean Greek árið 1956. Chadwick samdi aðgengilega og vinsæla bók um samvinnu þeirra Ventris árið 1958, The Decipherment of Linear B. Hann settist í helgan stein árið 1984.
Helstu rit
[breyta | breyta frumkóða]- The Decipherment of Linear B (Cambridge: Cambridge University Press, 1958, 2. útg. 1990).
- The Mycenaean World (Cambridge: Cambridge University Press, 1976).
- Ásamt Michael Ventris, Documents in Mycenaean Greek (Cambridge: Cambridge University Press, 1956, 2. útg. 1978).