Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Innfeldi (oft kallað punkt- eða depilmargfeldi) er tvílínulegur virki, sem skilgreindur er á vigurrúmi. Er ýmist táknuð með tveimur oddklofum, , eða með punkti, . Vigurrúm ásamt innfeldi er kallað innfeldisrúm.
Látum vera svið sem er annaðhvort rauntölusviðið eða tvinntölusviðið . Látum vera vigurrúm yfir .
Innfeldi yfir vigurrúm er skilgreint sem vörpun þ.a. eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt fyrir öll og :
- og
- ef og aðeins ef
Venjulega innfeldið á (n-vítt Evklíðskt rúm) er skilgreint þannig:
- , þar sem og .
Einnig má finna innfeldi tveggja vigra með því að margfalda saman lengdir þeirra og kosínus af horninu milli þeirra:
- , þar sem er hornið milli vigranna a og b.
Þá er maður í raun að ofanvarpa öðrum vigrinum á hinn og margfalda svo saman lengdir þeirra.
Innföldun er víxlin og dreifin aðgerð.
Algengt er að nota innfeldi til að finna horn milli tveggja vigra ef hnit þeirra eru þekkt. Það má gera svona:
- . Hér táknar lengd vigursins a.
Mikilvægur eiginleiki innfelda er að innfeldi hornréttra vigra er núll. Það er auðvelt að sjá það því að þátturinn verður núll þegar þar sem