Fara í innihald

Einkaleyfi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Einkaleyfi er leyfi sem er veitt einum aðila á tæknilegum uppfinningum sem leysa tiltekið vandamál. Uppfinningin þarf að vera alveg ný og óþekkt þegar sótt er um, þ.e. ekki má vera búið að kynna hana almenningi í ræðu eða riti, en ekki er hægt að fá einkaleyfi á óhlutbundnum uppfinningum eins og viðskiptaaðferðum og óútfærðum hugmyndum. Með einkaleyfinu er hægt að hindra aðra í að nýta uppfinninguna í atvinnuskyni í ákveðinn tíma, að hámarki 20 ár. Sérstakar reglur gilda um lyf og plöntuvarnarefni sem unnt er að vernda að hámarki 25 ár. Hugverkastofan veitir einkaleyfi á Íslandi.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.