Fara í innihald

DreamWorks Animation

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Höfuðstöðvar DreamWorks Animation í Glendale í Kaliforníu.

DreamWorks Animation[1] (líka þekkt sem DreamWorks Animation Studios eða einfaldlega DreamWorks) er bandarískt teiknimyndaver í eigu Universal Pictures, deild innan NBCUniversal sem aftur er dótturfyrirtæki Comcast. Teiknimyndaverið hefur framleitt um 50 teiknimyndir í fullri lengd, þar á meðal nokkrar af tekjuhæstu teiknimyndum allra tíma. Fyrsta myndin sem kom út frá þeim var Antz 2. október 1998. Sú nýjasta er Villta vélmennið (The Wild Robot) sem kom út 27. september 2024.

DreamWorks Animation var stofnað sem deild innan DreamWorks Pictures, með fyrrum starfsfólki Amblimation, teiknimyndadeildar Amblin Entertainment. Það var sett í sérfyrirtæki árið 2004 og árið 2016 var það selt til NBCUniversal fyrir 3,8 milljarða dala.[2] Í byrjun gerði DreamWork Animations hefðbundnar teiknimyndir, auk stop-motion-hreyfimynda í samstarfi við Aardman Animations, en síðustu ár hefur það eingöngu fengist við tölvuteiknimyndir.[3] Meðal þekktustu mynda DreamWorks Animation eru Shrek, Madagaskar, Kúng fú panda, Að temja drekann sinn og Tröll, auk mynda um Wallace og Gromit í samstarfi við Aardman. Myndir fyrirtækisins hafa unnið til fjölda verðlauna, þar á meðal þriggja Óskarsverðlauna, 41 Emmy-verðlauna, fjölda Annie-verðlauna, og fengið nokkrar tilnefningar til Golden Globe- og BAFTA-verðlauna.

Til ársins 2005 sá DreamWorks Pictures um dreifingu DreamWorks Animation-teiknimynda. Frá 2006 til 2012 sáu Paramount Pictures um dreifingu, og 20th Century Fox frá 2013 til 2017. Flestar myndir sem komið hafa út frá 2017 hafa farið gegnum Universal Pictures, sem á líka réttinn að eldri myndum.[4]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „DREAMWORKS ANIMATION L.L.C.“. OpenCorporates. 6. mars 1995. Sótt 31 ágúst 2023.
  2. „COMCAST CONFIRMS IT WILL BUY DREAMWORKS ANIMATION“. Film Industry Network. 28 apríl 2016. Afrit af uppruna á 3. mars 2022. Sótt 30 júní 2019.
  3. Jesús Agudo (13. desember 2022). „Margie Cohn, president of DreamWorks Animation, on saving 'Puss in Boots: The Last Wish' and the future of Shrek“. eCartelera (spænska). Sótt 27 janúar 2024.
  4. D'Alessandro, Anthony (27. september 2018). 'How To Train Your Dragon: The Hidden World' To Fly A Week Earlier In February“. Deadline Hollywood. Afrit af uppruna á 5 ágúst 2020. Sótt 13. mars 2019.