Daman og Diu
Útlit
Daman og Diu eru tvær fyrrum hjálendur Portúgals sem Indland lagði undir sig með hervaldi, ásamt Góa, árið 1961. Allar þessar þrjár hjálendur voru saman í einu alríkishéraði til 1987 þegar Góa varð sérstakt fylki. Alríkishéraðið nær því aðeins yfir bæina Daman og Diu sem eru sitt hvoru megin við mynni Khambhat-flóa við fylkið Gujarat. Um 640 kílómetrar skilja bæina að.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Daman og Diu.