Blake Lively
Blake Lively | |
---|---|
Fædd | Blake Ellender Brown 25. ágúst 1987 Los Angeles í Kalifornía í Bandaríkjunum |
Störf |
|
Ár virk | 1998-í dag |
Maki | Ryan Reynolds (g. 2012) |
Börn | 4 |
Foreldrar | Ernie Lively (faðir) |
Undirskrift | |
Blake Ellender Lively (f. 25. ágúst 1987) er bandarísk leikkona. Hún fer með hlutverk Serenu van der Woodsen í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl. Hún hefur einnig leikið í kvikmyndum, eins og Accepted og The Sisterhood of the Traveling Pants, The Private Lives of Pippa Lee, The Town,Green Lantern og Savages.
Æska
[breyta | breyta frumkóða]Lively fæddist í Tarzana í Los Angeles og er dóttir leikaranna Ernie og Elaine Lively. Hún var alin upp sem baptisti. Hún er yngst af fimm systkinum; hún á bróðurinn Eric, hálfsysturnar Lori og Robyn og hálfbróðurinn Jason. Báðir foreldrar hennar og öll systkini hennar hafa verið, eða eru í, skemmtanabransanum. Í æsku tóku foreldrar Lively hana alltaf með í leiklistartímana sem þau kenndu því þau vildu ekki skilja hana eftir hjá barnapíu. Lively hefur sagt að það að horfa á foreldra sína kenna leiklist hafi hjálpað henni að ná grunnatriðum leiklistarinnar og eflt sjálfstraust hennar þegar hún varð eldri. Sem barn fór Lively með móður sinni tvisvar í viku í Disneyland til að þær gætu tengst betur. Lively hefur sagt að eftir allan þann tíma sem hún hefur eytt þar, finnist henni eins og hún hafi "alist upp í Disnleylandi".
Í upphafi hafði Lively ekki mikinn áhuga á leiklist, en sumarið eftir þriðja árið í menntaskóla (e."high school") bað bróðir hennar, Eric, umboðsmanninn sinn um að senda hana í nokkrar áheyrnaprufur yfir sumartímann. Eftir nokkrar prufur fékk hún hlutverk Bridgetar í kvikmyndinni The Sisterhood of the Traveling Pants. Livley tók upp atriðin sín fyrir myndina um sumarið.
Ferill
[breyta | breyta frumkóða]Lively byrjaði leikferilinn 11 ára þegar hún lék í kvikmyndinni Sandman (1998) sem var leikstýrt af föður Lively.
Hún lýsir hlutverkinu í kvikmyndinni sem pínulitlu. Lively birtist síðan í kvikmynd sem byggð var á bókinni Gallabuxnaklúbburinn (e. The Sisterhood of the Traveling Pants) árið 2005 sem Bridget, ein af fjórum aðalpersónum. Frammistaða Lively í myndinni gaf henni tilnefningu til Teen Choice Awards.
Árið 2006 lék hún ásamt Justin Long í Accepted en hún lék einnig lítið hlutverk í hrollvekjunni Simon Says. Á meðan Accepted fékk ekki góðar viðtökur gagnrýnenda, hlaut Lively mikið lof fyrir frammistöðu sína. Árið 2007 lék Lively annað titilhlutverkið í Elvis and Anabelle, þar sem hún lék Anabelle, stelpu sem berst við búlimíu og vonast til að vinnna fegurðarsamkeppni. Hún hlaut mikið lof fyrir frammistöðu sína og hefur verið vísað til hlutverksins sem það hlutverk sem gerði hana fræga.
Lively var ráðin í sjónvarpsþáttaröðina Gossip Girl á CW-stöðinni, sem var frumsýnd í september 2007. Hún leikur Serenu van der Woodsen í unglingadramanu. Fyrsta tímaritaforsíðan hennar var nóvemberblað Cosmo Girl árið 2007 þar sem hún ræddi um menntaskólaárin og ferilinn áður en hún byrjaði að leika í Gossip Girl.
Árið 2008 endurtók Lively hlutverk sitt í framhaldsmyndinni, The Sisterhood of the Traveling Pants 2. Líkt og með fyrri myndina hlaut Lively mikið lof gagnrýnenda. Í nóvember 2009 hafði myndin halað inn yfir 44 milljónum dollara. Árið 2009 lék Lively Grabrielle DiMarco, lítið hlutverk í rómantísku gamanmyndinni New York, I Love You, sem var framhald myndarinnar Paris, je t'aime. Þrátt fyrir góða gagnrýni gekk myndinni illa í miðasölu.
Eitt af bestu hlutverkum Lively til þessa er aukahluverkið í kvikmyndinni The Private Lives of Pippa Lee (2009) þar sem hún lék aðalpersónuna á yngri árum. Í október 2009 byrjaði Lively að taka upp atriði sín sem Krista Coughlin í kvikmyndinni The Town (2010) sem var byggð á skáldsögu Chuck Hogan, Prince of Thieves. Kvikmyndin, þar sem Ben Affleck fer með aðalhlutverkið, kom út í Bandaríkjunum þann 17. september 2010 og hlaut mikið lof gagnrýnenda.
Lively lék Carol Ferris, aðal kvenhlutverkið og ástkonu Hal Jordan í ofurhetjumyndinni Green Lantern sem kom út í júní 2011. Alls halaði myndin inn 220 milljónum dala í miðasölu en þótti hins vegar ekki standast væntingar, þrátt fyrir að tekjur myndarinnar væru hærri en framleiðslukostnaðurinn. Lively lék í tónlistarmyndbandi við lag The Lonely Islands, "I Just Had Sex" ásamt Jessicu Alba í desember 2010.
Árið 2012 lék hún í kvikmynd Oliver Stone, Savages ásamt Taylor Kitch, Aaron Johnson, Sölmu Hayek og John Travolta. Lively fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína og var lýst sem "klárri og nákvæmri þar sem hún leikur svo brotna, hjálparlausa sál". Lively átti að leika í mynd Steven Soderbergh's, The Side Effects en Rooney Mara fékk hlutverkið í hennar stað. Þrátt fyrir það var Lively valin sem andlit nýja Gucci ilmsins árið 2012, Guccie Premiere. Hún lék einnig í stuttmynd sem var leikstýrt af Nicolas Winding Refn fyrir ilminn.
Einkalíf
[breyta | breyta frumkóða]Fyrir bandarísku forsetakosningarnar árið 2008 lýsti Lively yfir stuðningi sínum við forsetann Barack Obama. Livley og Penn Badgley léku í pro-Obama auglýsingu fyrir MoveOn.org.
Árið 2011 var hún á árlegum lista tímaritsins TIME yfir 100 áhrifamesta fólkið. Til viðbótar útnefndi vefsíðan AskMen.com hana mest aðlaðandi konu ársins 2011 og tímaritið People útnefndi hana eina af þeim fallegustu á hvaða aldri árið 2012.
Sambönd
[breyta | breyta frumkóða]Lively átti í ástarsambandi við leikarann Kelly Blatz á árunum 2004-2007, en þau voru æskuvinir. Lively var í sambandi með leikaranum Penn Badgley frá síðari hluta árs 2007 fram í september 2010. Hún átti þá í ástarsambandi við leikarann Leonardo DiCaprio frá miðjum maí fram í október 2011.
Lively byrjaði með mótleikara sínum úr Green Lantern, Ryan Reynolds í október 2011. Í júní 2012 keyptu þau Reynolds hús í Bedford í New York, fyrir 2 milljónir dollara. Parið gekk í hjónaband þann 9. september 2012 á Mount Pleasant í Suður-Karólínu.
Kvikmyndaskrá
[breyta | breyta frumkóða]Kvikmyndir
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
---|---|---|---|
1998 | Sandman | Trixie/Tannálfurinn | Fyrsta hlutverk |
2005 | The Sisterhood of the Traveling Pants | Bridget Vreeland | Aðalhlutverk |
2006 | Accepted | Monica Moreland | |
2006 | Simon Says | Jenny | |
2007 | Elvis and Anabelle | Anabelle Leigh | |
2008 | The Sisterhood of the Traveling Pants 2 | Bridget Vreeland | |
2009 | New York, I Love You | Gabrielle DiMarco | |
2009 | The Private Lives of Pippa Lee | Ung Pippa Lee | |
2010 | The Town | Krista Coughlin | |
2011 | Green Lantern | Carol Ferris | |
2011 | Hick | Glenda | |
2012 | Savages | Ophelia "O" Sage | |
2015 | The Age of Adaline | Adaline Bowman | |
2016 | The Shallows | Nancy Adams | |
Café Society | Veronica Hayes | ||
2017 | All I See Is You | Gina | |
2018 | A Simple Favor | Emily Nelson | |
2020 | The Rhythm Section | Stephanie Patrick | |
2024 | IF | Octopuss (voice) | |
It Ends with Us | Lily Bloom | Einnig aðalframleiðandi | |
2025 | Untitled A Simple Favor sequel | Emily Nelson | Í tökum |
Sjónvarpsþættir
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemdir |
---|---|---|---|
2007-2012 | Gossip Girl | Serena van der Woodsen | Aðalhlutverk |
2009 | Saturday Night Live | Sem hún sjálf (þáttastjórnandi) | Þáttur: "Blake Lively/Rihanna" |
2018 | When You Wish Upon a Pickle: A Sesame Street Special | Sendill |
Tónlistarmyndbönd
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Titill | Hlutverk | Höfundur/ar | Athugasemdir |
---|---|---|---|---|
2010 | I Just Had Sex | Óánægð kærasta | The Lonely Island ásamt Akon | |
2014 | Part II (On the Run) | Hún sjálf | Jay-Z ásamt Beyoncé | |
2021 | I Bet You Think About Me | - | Taylor Swift ásamt Chris Stapleton | Einnig höfundur, framleiðandi og leikstjóri |
Verðlaun
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Verðlaun | Flokkur | Tilnefnd fyrir | Niðurstaða |
---|---|---|---|---|
2005 | Teen Choice Award | Besta leikkona í kvikmynd | The Sisterhood of the Traveling Pants | Tilnefnd |
2008 | Teen Choice Award] | Besta leikkona í drama-sjónvarpsþætti | Gossip Girl | Vann |
2008 | Teen Choice Award | Framúrskarandi framistaða í sjónvarpsþætti | Gossip Girl | Vann |
2008 | Newport Beach Film Festival | Framúrskarandi frammistaða | Elvis and Anabelle | Vann |
2009 | Prism Awards | Besta frammistaða í drama-þætti | Gossip Girl | Tilnefnd |