Paolo Villaggio
Útlit
Paolo Villaggio (30. desember 1932 – 3. júlí 2017) var ítalskur rithöfundur, leikari og leikstjóri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem ólánsami skrifstofumaðurinn Ugo Fantozzi sem var leiksoppur bæði valdamikilla stjórnenda og eigin metnaðar. Fantozzi var efni tíu gamanmynda frá 1975 til 1999 en kom upphaflega fram í útvarpsþætti sem Villaggio stýrði árið 1968. 1971 kom út bók með stuttum sögum af ævintýrum Fantozzi sem varð grunnur fyrir handrit fyrstu kvikmyndanna.