Tappi tíkarrass
Útlit
(Endurbeint frá Tappi Tíkarrass)
Tappi tíkarrass | |
---|---|
Uppruni | Ísland, Reykjavík |
Ár | 1981 – 1983 |
Stefnur | Popp, Pönk |
Meðlimir | Björk Guðmundsdóttir Jakob Smári Magnússon Eyjólfur Jóhannsson Guðmundur Þór Gunnarsson |
Fyrri meðlimir | Eyþór Arnalds Oddur F. Sigurbjörnsson |
Tappi tíkarrass var íslensk pönk/popphljómsveit sem var stofnuð árið 1981. Stofnmeðlimir hennar voru Eyþór Arnalds (söngur), Jakob Smári Magnússon (bassi), Eyjólfur Jóhannsson (gítar), og Oddur F. Sigurbjörnsson (trommur) og síðar Björk Guðmundsdóttir (söngur) og Guðmundur Þór Gunnarsson (trommur),. Nafnið kom að sögn til þannig að faðir Jakobs sagði um tónlist hljómsveitarinnar: „Þetta smellur eins og tappi í tíkarrass hjá ykkur.“[1]
Tappi tíkarrass var ein hljómsveitanna sem fram komu í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík. Sveitin gaf út eina stuttskífu og eina breiðskífu en hætti nokkru eftir að breiðskífan Miranda kom út í desember 1983.
Útgefið efni
[breyta | breyta frumkóða]- Bitið fast í vitið (1982)
- Miranda (1983)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]Heimildaskrá
[breyta | breyta frumkóða]- Rokksaga Íslands, by Gestur Guðmundsson. Forlagið (1990).
- Björk, Colección Imágenes de Rock, N°82, by Jordi Bianciotto. Editorial La Máscara (1997).
- Alternative Rock: Third Ear - The Essential Listening Companion, by Dave Thimpson. Backbeat Books (2000).
- Lobster or Fame, by Ólafur Jóhann Engilbertsson. Bad Taste (2000).