Snælda
Útlit
Snælda eða halasnælda er handverkfæri, teinn (hali) úr tré með snúð úr tré, beini, steini eða blýi og hnokka úr eir eða járni á öðrum enda. Notað til að spinna/tvinna band.
Snælda er fornt verkfæri til að spinna þráð. Hún er gerð úr þremur hlutum, snúð, hala og hnokka. Snældusnúður var ýmist úr steini, beini eða tré. Hann var kringlóttur, flatur að neðan og kúptur að ofan og á honum miðjum var gat. Í gatið á snældusnúðnum var rekinn annar endi snælduhalans. Snælduhalinn var úr tré, hann var langur og mjór og mjókkaði frá snúðnum. Hnokki var lítill krókur úr eir eða járni sem var festur í efri halaendann.
Myndaröð sem sýnir hvernig spunnið er á snældu.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Snælda.
- Elsa E. Guðjónsson, „Um rokka, einkum með tilliti til skotrokka“, Árbók Hins íslenzka fornleifafélags,(01.01.1991), blaðsíða 20.