Madríd
Madríd | |
---|---|
Hnit: 40°25′01″N 03°42′12″V / 40.41694°N 3.70333°V | |
Land | Spánn |
Sjálfstjórnarhérað | Madríd |
Stofnun | 9. öld |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | José Luis Martínez-Almeida (PP) |
Flatarmál | |
• Samtals | 604,31 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 650 m |
Mannfjöldi (2023) | |
• Samtals | 3.332.035 |
• Þéttleiki | 5.514/km2 |
Tímabelti | UTC+1 (CET) |
• Sumartími | UTC+2 (CEST) |
Póstnúmer | 28001–28080 |
Vefsíða | madrid |
Madríd er höfuðborg Spánar og sjálfstjórnarhéraðs með sama nafni. Íbúar borgarinnar sjálfrar voru um 3,3 milljónir árið 2021 en með útborgum er íbúafjöldinn um 6,7 milljónir. Madríd, sem er stærsta borg Spánar, liggur inni í miðju landi á víðáttumikilli sléttu við fljótið Manzanares. Hún er efnahagslegur, menningarlegur og pólitískur miðpunktur landsins.
Borgin hefur verið höfuðborg frá því á 16. öld og á síðari tímum hefur hún verið mikilvæg miðstöð verslunar og iðnaðar. Í hjarta Madrid er torgið Puerta del Sol og út frá því liggja allar aðalgötur borgarinnar. Nýrri borgarhverfi eru í austurhlutanum.
Söfn
[breyta | breyta frumkóða]- Prado-safnið, eitt af betri söfnum með evrópskri list frá 12.-19 öld.
- Reina Sofía-safnið, nýlistasafn.
- Thyssen-Bornemisza-safnið, ýmis list.
Íþróttir
[breyta | breyta frumkóða]Í knattspyrnu eru stórliðin Real Madrid og Atlético Madrid. Minna liðið er Rayo Vallecano.
Real Madrid körfuboltaliðið er einnig með góðan árangur í Evrópukeppnum.
-
Plaza Mayor.
-
Konungshöllin, Palacio Real.
-
Santiago Bernabéu, heimavöllur Real Madrid.
-
Atocha-lesarstöðin.
-
Prado-listasafnið.
-
Almudena-dómkirkjan.
-
Viðskiptahverfið:Fjórir turnar.
-
Cibeles-höll. Fyrrum höfuðstöðvar spænska póstsins en nú notað undir borgarráð.
-
Puerta del Sol.
-
Miðbærinn í rökkri.