Verg landsframleiðsla


Verg landsframleiðsla[a] (eða GDP af enska heitinu gross domestic product) er mælikvarði notaður í þjóðhagsreikningum á það hversu mikið er framleitt af tilbúnum vörum og þjónustu. Það mælir markaðsvirði allrar vöru og þjónustu, sem framleidd er til endanlegra nota innan lands á tilteknu tímabili. Einnig er hægt að mæla hreina landsframleiðslu og eru þá afskriftir og skuldir dregnar frá.
Gerður er greinarmunur á þjóðarframleiðslu og landsframleiðslu. Þjóðarframleiðsla er framleiðsla einnar þjóðar þar sem eigur og tekjur erlendra ríkisborgara eru ekki teknar með í reikninginn.
Landsframleiðsla mælir ekki það sem framleitt er á heimilum til einkanota. Hún mælir ekki heldur óskráð og ólögleg viðskipti innan neðanjarðarhagkerfis.
Hagvöxtur er mælieining á hlutfallslega breytingu á landsframleiðslu frá einu ári til annars.
Athugasemdir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Vergur merkir „brúttó“, þ.e.a.s. afskriftir og skuldir hafa ekki verið dregnar frá.