1764
Útlit
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1764 (MDCCLXIV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Almenna verslunarfélagið tók við einokunarversluninni á landinu.
Fædd
Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 15. febrúar - Borgin St. Louis var stofnuð í Mississippi.
- 31. mars - Rússneska keisaraveldið og Prússland skrifuðu undir varnasamning.
- 27. apríl - Wolfgang Amadeus Mozart spilaði fyrir bresku konungshjónin, 8 ára gamall.
- 6. júlí - Bretar fóru frá Havana sem þeir höfðu hertekið tveimur árum áður, á meðan sjö ára stríðið átti sér stað. Bretar fengu Vestur-Flórída í stað Havana með samningum við Spánverja.
- 26. júlí - Fyrsta skotárás í skóla átti sér stað í Bandaríkjunum þegar frumbyggjar drápu tíu börn og kennara eirra í Greencastle Pennsylvaníu. Ástæða hennar var hefd fyrir yfirtöku hvítra landnema í Pennsylvaníu.
- 1. ágúst - Níagara-samningurinn: Bretar og 44 ættbálkar frumbyggja í Ameríku gerðu friðarsamninga sem batt enda á stríð sem hafði gengið á síðan 1756.
- Brown-háskóli var stofnaður á Rhode Island.
Fædd
- 13. mars - Charles Grey, jarl af Grey, forsætisráðherra Bretlands.
- 9. júlí - Ann Radcliffe, enskur rithöfundur.
Dáin
- 15. apríl - Madame de Pompadour, frönsk aðalskona.
- 7. júlí - William Pulteney, breskur stjórnmálamaður sem gegndi embætti forsætisráðherra Bretlands í þrjá daga.
- 12. september - Jean-Philippe Rameau, franskt barokktónskáld.
- 2. október - William Cavendish, hertogi af Devonshire, forsætisráðherra Bretlands.
- 26. október - William Hogarth, enskur listamaður, myndskeri og skopmyndateiknari