Birkir Jón Jónsson
Birkir Jón Jónsson (BJJ) | |
Fæðingardagur: | 24. júlí 1979 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Siglufjörður |
Þingsetutímabil | |
2003-2007 | í Norðaust. fyrir Framsfl. ✽ |
2007-2009 | í Norðaust. fyrir Framsfl. |
2009-2013 | í Norðaust. fyrir Framsfl. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2004-2006 | Formaður iðnaðarnefndar |
2006-2007 | Formaður fjárlaganefndar |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Birkir Jón Jónsson (f. á Siglufirði 24. júlí 1979) er fyrrverandi varaformaður Framsóknarflokksins og sat á þingi fyrir flokkinn frá 2003-2013. Birkir Jón var varaformaður Framsóknarflokksins frá 2009-2013. Frá 2014 til 2022 var Birkir Jón bæjarfulltrúi í Kópavogi og formaður bæjarráðs frá 2018-2022. Birkir Jón sat í bæjarstjórn Fjallabyggðar 2006-2010.
Birkir útskrifaðist úr Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Sauðárkróki 1999 og hefur stundað nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Birkir Jón sat um árabil í stjórn Félags ungra framsóknarmanna á Siglufirði og var einnig í stjórn Sambands ungra framsóknarmanna 1999-2001 og gengdi embætti varaformanns þess 2002-2003.
Á kjördæmisþingi sem haldið var á Egilsstöðum þann 15. mars 2009 var Birkir Jón kjörinn til að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningunum 25. apríl 2009.
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]- Æviágrip Alþingis
- Heimasíða Sambands Ungra Framsóknarmanna
- Heimasíða Birkis Jóns Geymt 20 mars 2018 í Wayback Machine