Fara í innihald

Ráðuneyti Gunnars Thoroddsens

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 5. ágúst 2022 kl. 13:45 eftir 89.160.233.104 (spjall) Útgáfa frá 5. ágúst 2022 kl. 13:45 eftir 89.160.233.104 (spjall)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens var samsteypustjórn nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins og þingflokka Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins. Ríkisstjórnin starfaði frá 8. febrúar 1980 til 26. maí 1983.

Stjórnin var ein óvæntasta og umdeildasta ríkisstjórn sögunnar og var mynduð í kjölfar fjögurra mánaða langrar stjórnarkreppu. Kristján Eldjárn þáverandi forseti Íslands var kominn á fremsta hlunn með myndun utanþingsstjórnar þegar Gunnari Thoroddsen varaformanni Sjálfstæðisflokksins tókst að mynda stjórn með Framsóknarflokki, Alþýðubandalagi og nokkrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Stjórnin var mynduð í andstöðu við meirihluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins og varð Geir Hallgrímsson formaður flokksins leiðtogi stjórnarandstöðunnar á þingi.[1]

Ráðherrar í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen

[breyta | breyta frumkóða]



Fyrirrennari:
Ráðuneyti Benedikts Gröndals
Ríkisstjórn Íslands
(8. febrúar 198026. maí 1983)
Eftirmaður:
Fyrsta ráðuneyti Steingríms Hermannssonar


Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Brynjólfur Þór Guðmundsson, „Ein óvæntasta og umdeildasta stjórnarmyndun sögunnar“ ruv.is (skoðað 10. febrúar 2020)