Fara í innihald

John Betjeman

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 2. febrúar 2021 kl. 23:24 eftir Manneskja (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. febrúar 2021 kl. 23:24 eftir Manneskja (spjall | framlög) (Sjálfvirk uppfærsla rofinna hlekkja á Tímarit.is (ath: blaðsíða getur verið röng))
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jon Betjeman.

Sir John Betjeman (28. ágúst 1906 - 19. maí 1984) var enskt skáld, rithöfundur og útvarps- og sjónvarpsmaður. Hann hóf feril sinn sem blaðamaður, en varð síðan frægt ljóðskáld. 1972 var hann valinn lárviðarskáld Bretlands.

John Betjeman hafði mikinn áhuga á byggingarlist og sérstaklega gömlum byggingum með sögu. Hann var t.d. helsti liðsoddur þeirra sem vildu friða gömul hús víða í Bretlandi. Hann átti þátt í að bjarga mörgum húsum t.d. gömlu viktóríönsku ráðhúsi í smábæ einum, en þar átti að reisa neðanjarðarbílastæði.

  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.