Fara í innihald

Kleina

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 10. mars 2014 kl. 09:37 eftir Bragi H (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. mars 2014 kl. 09:37 eftir Bragi H (spjall | framlög) (+wikiorðabókin+flokka nánar)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Íslensk kleina
Kleinur eru skornar með sérstöku kleinujárni

Kleina er lítil snúin kaka steikt í feiti (til dæmis tólg) og hefur lengi verið vinsælt kaffibrauð á Íslandi. Kleinur eru skornar út með kleinujárni (kleinuskera). Fyrrum steiktu menn stundum kleinur í lýsi, en það var sjaldgæft.

Strangt til tekið er rangt að tala um að baka kleinur þar sem þær eru ekki bakaðar heldur steiktar. [1]

Kaffibrauðið kleina er ættað frá Danmörku en þar er það jóla-bakkelsi. Nafnið „kleina“ er íslenskun danska nafnsins „klejne“, sem er dregið frá danska lýsingarorðinu „klejn“ sem merkir grannur, mjór eða pervisaleg/ur.Í Noregi heitir kleina fattigmann, í Danmörku klejne, í Svíþjóð klenäter.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  Þessi matar eða drykkjargrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.