Fara í innihald

Flatfiskar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Flatfiskar
Sandhverfa (Psetta maxima)
Sandhverfa (Psetta maxima)
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríki (Animalia)
Fylking: Seildýr (Chordata)
Flokkur: Geisluggar (Actinopterygii)
Ættbálkur: Pleuronectiformes
Ættir

Flatfiskar (fræðiheiti: Pleuronectiformes) eru ættbálkur geislugga sem stundum eru flokkaðir sem undirættbálkur borra. Margar tegundir eru með bæði augun öðrum megin á höfðinu þar sem annað augað eða bæði flyst til þegar fiskurinn þroskast. Sumar tegundir snúa upp vinstri hliðinni en aðrar þeirri h��gri. Annað einkenni eru augu sem geta staðið út úr höfðinu og bakuggi sem nær alla leið fram á höfuðið. Þessi einkenni flatfiska eru aðlögun að lífi á sjávarbotni þar sem þeir liggja flatir á annarri hliðinni til að felast fyrir rándýrum.

Margir mikilvægir matfiskar tilheyra þessum ættbálki, þar á meðal lúða, koli og sandhverfa.

Flatfiskar hafast að mestu við við sjáfarbotninn. Flestar tegundirnar hafast við í saltsjó en nokkrar finnast í ferskvatni.

Tæplega 700 tegundir teljast til flatfiska.


  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.