Evrópukeppni bikarhafa
Evrópukeppni bikarhafa (e. UEFA Cup Winners' Cup) var keppni í knattspyrnu. Fyrsta keppnin var haldin 1960-61 sú síðasta 1998-99. Eins og nafnið gefur til kynna var keppnin ætluð sigurvegurum í bikarkeppnum landa Evrópu. Í dag öðlast bikarmeistarar hins vegar þátttökurétt í Evrópudeild UEFA. Spænska stórliðið FC Barcelona var sigursælasta liðið í sögu keppninnar með fjóra meistaratitla.
Keppnisfyrirkomulag
[breyta | breyta frumkóða]Í nærri fjörutíu ára sögu keppninnar var alla tíð notast við sama keppnisfyrirkomulag: útsláttarkeppni þar sem félög mættust bæði heima og heiman. Undantekning frá þessu var úrslitaleikurinn sem haldinn var á hlutlausum velli, nema fyrsta árið þar sem leikinn var tvöfaldur úrslitaleikur. Keppnin hófst yfirleitt í september ár hvert og lauk í maímánuði.
Þátttökuliðin voru bikarmeistararnir frá hverju landi, en að auki gafst ríkjandi meisturum færi á að verja titil sinn, svo fremi að viðkomandi lið hefði ekki tryggt sér sæti í Evrópukeppni meistaraliða. Engu liði í sögu keppninnar tókst þó að verja titilinn.
Saga
[breyta | breyta frumkóða]Vinsældir Evrópukeppni meistaraliða sem og Borgakeppni Evrópu, forvera Evrópukeppni félagsliða sýndu fram á að eftirspurn væri eftir keppnum milli félagsliða víðsvegar að úr Evrópu. Út frá því spratt sú hugmynd að stofna sérstaka keppni fyrir sigurlið í bikarkeppnum álfunnar. Ekki voru þó allir sannfærðir um ágæti hugmyndinnar, meðal annars þar sem að bikarkeppnir voru í mörgum löndum í frekar litlum metum, öfugt við t.d. það sem tíðkaðist í Englandi og Skotlandi, þar sem úrslitaleikur bikarsins var talinn einn af hápunktum hvers knattspyrnuárs. Tilkoma mótsins varð því til þess að lyfta bikarkeppnum víða um lönd, enda þátttaka í Evrópukeppni talin eftirsóknarverð.
Fyrsta keppnin var haldin veturinn 1960-1 með þátttöku tíu liða. Mótið hafði ekki fulla formlega stöðu sem Evrópukeppni á vegum UEFA, en hefð er þó fyrir því að telja sigurvegara hennar, ítalska liðið Fiorentina fyrstu sigurvegarana í sögu keppninnar. Þetta fyrsta ár var leikið heima og heiman í úrslitunum og voru mótherjarnir Rangers. Þegar á öðru ári keppninnar áttu velflest aðildarlönd UEFA sinn fulltrúa.
Eftir að Evrópukeppni félagsliða kom til, var goggunarröð Evrópumótanna skilgreind á þá leið að Evrópukeppni meistaraliða væri æðst, þá kæmi Evrópukeppni bikarhafa og því næst Evrópukeppni félagsliða. Var þessi röðun látin ráða því í hvaða röð félagslið veldust í keppnirnar, t.d. kepptu lið sem urðu bæði bikarmeistarar og höfnuðu í öðru sæti í landsdeild sinni í Evrópukeppni bikarhafa. Engu að síður var Evrópukeppni félagsliða í hugum margra knattspyrnuáhugamanna talin sterkari og þar með merkari keppni, einkum eftir að þátttökuliðum frá sterkari þjóðunum var fjölgað í þeirri keppni. Þrátt fyrir það hróflaði UEFA ekki við goggunarröð sinni og voru sigurliðin í Evrópukeppni meistaraliða og Evrópukeppni bikarhafa látin mætast á hverju hausti til að berjast um titilinn Evrópumeistari meistaranna.
Úrslitaviðureignir
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Sigurvegari | Úrslit | 2. sæti | Keppnisstaður |
---|---|---|---|---|
1960-61 | ![]() |
2:0 | ![]() |
Ibrox Stadium, Glasgow |
![]() |
2:1 | ![]() |
Communale Stadium, Flórens | |
1961-62 | ![]() |
3:0 (e.aukaleik) | ![]() |
Neckarstadion, Stuttgart |
1962-63 | ![]() |
5:1 | ![]() |
De Kuip, Rotterdam |
1963-64 | ![]() |
1:0 (e. aukaleik) | ![]() |
Bosuil Stadium, Antwerpen |
1964-65 | ![]() |
2:0 | ![]() |
Wembley, Lundúnum |
1965-66 | ![]() |
2:1 (e.framl.) | ![]() |
Hampden Park, Glasgow |
1966-67 | ![]() |
1:0 (e.framl.) | ![]() |
Städtisches Stadion, Nürnberg |
1967-68 | ![]() |
2:0 | ![]() |
De Kuip, Rotterdam |
1968-69 | ![]() |
3:2 | ![]() |
St. Jakob Stadium, Basel |
1969-70 | ![]() |
2:1 | ![]() |
Prater Stadium, Vínarborg |
1970-71 | ![]() |
2:1 (e.aukaleik) | ![]() |
Karaiskakis Stadium, Píreus |
1971-72 | ![]() |
3:2 | ![]() |
Camp Nou, Barcelona |
1972-73 | ![]() |
1:0 | ![]() |
Kaftanzoglio Stadium, Þessalóníku |
1973-74 | ![]() |
2:0 | ![]() |
De Kuip, Rotterdam |
1974-75 | ![]() |
3:0 | ![]() |
St. Jakob Stadium, Basel |
1975-76 | ![]() |
4:2 | ![]() |
Heysel Stadium, Brussel |
1976-77 | ![]() |
2:0 | ![]() |
Ólympíuleikvangurinn, Amsterdam |
1977-78 | ![]() |
4:0 | ![]() |
Parc des Princes, París |
1978-79 | ![]() |
4:3 (e.framl.) | ![]() |
St. Jakob Stadium, Basel |
1979-80 | ![]() |
0:0 (5:4 e.vítak.) | ![]() |
Heysel Stadium, Brussel |
1980-81 | ![]() |
2:1 | ![]() |
Rheinstadion, Düsseldorf |
1981-82 | ![]() |
2:1 | ![]() |
Camp Nou, Barcelona |
1982-83 | ![]() |
2:1 (e.framl.) | ![]() |
Nya Ullevi, Gautaborg |
1983-84 | ![]() |
2:1 | ![]() |
St. Jakob Stadium, Basel |
1984-85 | ![]() |
3:1 | ![]() |
De Kuip, Rotterdam |
1985-86 | ![]() |
3:0 | ![]() |
Stade de Gerland, Lyon |
1986-87 | ![]() |
1:0 | ![]() |
Spiros Louis Stadium, Aþenu |
1987-88 | ![]() |
1:0 | ![]() |
Stade de la Meinau, Strasbourg |
1988-89 | ![]() |
2:0 | ![]() |
Wankdorf Stadium, Bern |
1989-90 | ![]() |
2:0 (e.framl.) | ![]() |
Nya Ullevi, Gautaborg |
1990-91 | ![]() |
2:1 | ![]() |
De Kuip, Rotterdam |
1991-92 | ![]() |
2:0 | ![]() |
Ljósvangur, Lissabon |
1992-93 | ![]() |
3:1 | ![]() |
Wembley, Lundúnum |
1993-94 | ![]() |
1:0 | ![]() |
Parken, Kaupmannahöfn |
1994-95 | ![]() |
2:1 (e.framl.) | ![]() |
Parc des Princes, París |
1995-96 | ![]() |
1:0 | ![]() |
Stade Roi Baudouin, Brussel |
1996-97 | ![]() |
1:0 | ![]() |
De Kuip, Rotterdam |
1997-98 | ![]() |
1:0 | ![]() |
Råsunda Stadium, Stokkhólmi |
1998-99 | ![]() |
2:1 | ![]() |
Villa Park, Birmingham |