Alfred Hitchcock
Sir Alfred Hitchcock KBE | |
---|---|
Fæddur | Alfred Joseph Hitchcock 13. ágúst 1899 Leytonstone í Essex á Englandi |
Dáinn | 29. apríl 1980 (80 ára) Los Angeles í Kaliforníu í Bandaríkjunum |
Ríkisfang | Enskt Bandarískt (frá 1955) |
Störf |
|
Tímabil | 1919-1980 |
Maki | Alma Reville (g. 1926) |
Börn | 1 |
Undirskrift | |
Alfred Joseph Hitchcock (fæddur í London 13. ágúst 1899, lést 29. apríl 1980 í Bandaríkjunum) var þekktur kvikmyndaleikstjóri.
Ferill Hitchcocks
[breyta | breyta frumkóða]Hitchcock fékk snemma áhuga á kvikmyndagerð og þegar hann var 16 ára var hann farinn að lesa sér mikið til um kvikmyndir og kvikmyndagerð. Árið 1920 fékk Hitchcock vinnu hjá Lasky kvikmyndagerðinni í London sem titlahönnuður og var hann þar í tvö ár. Þá fékk hann tækifæri til að leikstýra myndinni Always tell your wife eftir að leikstjóri myndarinnar varð frá að hverfa vegna veikinda. Hitchcock kláraði myndina og voru yfirmenn hans svo ánægðir að honum var falið að leikstýra myndinni Number 13, einungis 22 ára gömlum. Sú mynd var hinsvegar aldrei kláruð. Fyrstu mynd sína í fullri lengd gerði hann svo árið 1925 og var það myndin The Pleasure Garden. 2. desember 1926 giftist Hitch Ölmu Reville, konunni sem átti eftir að vera hans stoð og stytta gegnum langan feril hans.
Fyrsta mynd Hitchcocks sem náði verulegum vinsældum var myndin The Lodger frá 1927. Hann náði heimsfrægð árið 1935 þegar hann gerði myndina The 39 Steps. Alfred Hitchcock átti það til að birtast í einni senu í kvikmyndunum sem hann framleiddi og þá langoftast sem óskilgreind persóna.
Árið 1939 flutti Alfred Hitchcock með fjölskyldu sína til Bandaríkjanna þar sem hann var staðráðinn í að hefja alþjóðlegan kvikmyndaferil sinn. Þar átti hann eftir að vera það sem eftir var af ferli sínum, eða allt til dauðadags. Hann fékk sjö ára samning hjá David O. Selznick og fyrsta mynd hans vestanhafs var Rebecca, byggð á skáldsögu Daphne Du Maurier. Í Bandaríkjunum gerði hann allar sínar frægustu myndir og má þar nefna Psycho, Glugginn á bakhliðinni, The Birds og Vertigo. Hann naut einnig mikilla vinsælda fyrir sjónvarpsþættina Alfred Hitchcock presents sem voru framleiddir frá 1955 til 1962.
Síðustu mynd sinni leikstýrði hann árið 1976 en það var myndin Fjölskyldugáta. Hann lést þann 29. apríl 1980, þá áttræður. Hann hafði á ferli sínum leikstýrt yfir 60 kvikmyndum.
Kvikmyndaskrá
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Upprunalegur titill | Íslenskur titill | Titlaður sem | ||
---|---|---|---|---|---|
Leikstjóri | Framleiðandi | Handritshöfundur | |||
1922 | Number 13 | Já | Nei | Nei | |
1925 | The Pleasure Garden | Já | Nei | Nei | |
1926 | The Mountain Eagle | Já | Nei | Nei | |
1927 | The Lodger: A Story of the London Fog | Já | Nei | Nei | |
The Ring | Já | Nei | Já | ||
Downhill | Já | Nei | Nei | ||
1928 | The Farmer's Wife | Já | Nei | Nei | |
Easy Virtue | Já | Nei | Nei | ||
Champagne | Já | Nei | Já | ||
1929 | The Manxman | Já | Nei | Nei | |
Blackmail | Fjárkúgun | Já | Nei | Já | |
1930 | An Elastic Affair | Já | Nei | Nei | |
Nei and the Paycock | Já | Nei | Já | ||
Murder! | Já | Nei | Já | ||
1931 | The Skin Game | Já | Nei | Já | |
Mary | Já | Nei | Nei | ||
Rich and Strange | Já | Nei | Já | ||
1932 | Number Seventeen | Já | Nei | Já | |
1934 | Waltzes from Vienna | Já | Nei | Nei | |
The Man Who Knew Too Much | Maðurinn sem vissi of mikið | Já | Nei | Nei | |
1935 | The 39 Steps | Já | Nei | Nei | |
1936 | Secret Agent | Njósnarinn | Já | Nei | Nei |
Sabotage | Spellvirki eða Skemmdarverk | Já | Nei | Nei | |
1937 | Young and Innocent | Ung og saklaus | Já | Nei | Nei |
1938 | The Lady Vanishes | Konan sem hvarf | Já | Nei | Nei |
1939 | Jamaica Inn | Já | Nei | Nei | |
1940 | Rebecca | Já | Nei | Nei | |
Foreign Correspondent | Utanríkisfréttaritarinn | Já | Nei | Nei | |
1941 | Mr. & Mrs. Smith | Já | Nei | Nei | |
Suspicion | Illur grunur | Já | Nei | Nei | |
1942 | Saboteur | Skemmdarverk | Já | Nei | Nei |
1943 | Shadow of a Doubt | Skuggar fortíðarinnar | Já | Nei | Nei |
1944 | Lifeboat | Björgunarbáturinn | Já | Nei | Nei |
The Fighting Generation | Já | Nei | Nei | ||
1945 | Spellbound | Í álögum | Já | Nei | Nei |
1946 | Notorious | Já | Já | Nei | |
1947 | The Paradine Case | Paradine-málið | Já | Nei | Nei |
1948 | Rope | Reipið | Já | Já | Nei |
1949 | Under Capricorn | Já | Já | Nei | |
1950 | Stage Fright | Konan að tjaldabaki | Já | Já | Nei |
1951 | Strangers on a Train | Hættuleg kynni | Já | Já | Nei |
1953 | I Confess | Skriftafaðirinn | Já | Já | Nei |
1954 | Dial M for Murder | Lykill að leyndarmáli | Já | Já | Nei |
Rear Window | Glugginn á bakhliðinni | Já | Já | Nei | |
1955 | To Catch a Thief | Grípið þjófinn | Já | Já | Nei |
The Trouble with Harry | Já | Já | Nei | ||
1956 | The Man Who Knew Too Much | Maðurinn sem vissi of mikið | Já | Já | Nei |
The Wrong Man | Ákærður saklaus | Já | Já | Nei | |
1958 | Vertigo | Svimaköst eða Lofthræðsla | Já | Já | Nei |
1959 | North by Northwest | Á flótta eða Þriðji maðurinn ósýnilegi eða Norðnorðvestur | Já | Já | Nei |
1960 | Psycho | Geggjun | Já | Já | Nei |
1963 | The Birds | Fuglarnir | Já | Já | Nei |
1964 | Marnie | Já | Já | Nei | |
1966 | Torn Curtain | Járntjaldið rofið | Já | Já | Nei |
1969 | Topaz | Tópas | Já | Já | Nei |
1972 | Frenzy | Morðæði | Já | Já | Nei |
1976 | Family Plot | Fjölslyldugáta | Já | Já | Nei |
1993 | Bon Voyage | Já | Nei | Nei | |
1993 | Aventure Malgache | Já | Nei | Nei |
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]Tengill
[breyta | breyta frumkóða]- www.cinema.is/hitchcock Geymt 21 mars 2005 í Wayback Machine