Arkhangelsk-fylki
Útlit
Arkangelskfylki (rússneska: Арха́нгельская о́бласть, Arkhangelskaja oblast) er fylki (oblast) í sambandslýðveldinu Rússlandi. Það nær yfir Frans Jósefsland, eyjarnar Novaja Zemlja og Nenetsíu. Bæði Fligelíhöfði, nyrsti oddi Evrópu, og Sjelaníjahöfði, austasti oddi Evrópu, tilheyra þessu fylki. Höfuðstaður fylkisins og stærsta borgin er Arkhangelsk við Hvítahaf. Severodvínsk er næststærst og er helsta höfn rússneska flotans. Íbúar fylkisins voru um 1,3 milljónir árið 2010. Stærð fylkisins er 587.400 ferkílómetrar.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Category:Arkhangelsk Oblast.