TCP
TCP eða TCP-samskiptareglur[1] (skammstöfun á enska Transmission Control Protocol) er einn af grundvallarsamskiptastöðlum Internetsins. TCP tilheyrir fjórða lagi OSI lagaskiptingarinnar sem nefnist flutningslagið (e. transport layer). Hlutverk TCP-staðalsins er að þjónusta þau lög fyrir ofan hann (aðallega application layer) til þess að flytja gögn yfir netkerfi. TCP-staðallinn nýtir sér síðan þjónustur IP-samkiptarstaðalsins sem er í netlaginu (e. network layer).
Það eru margir kostir við TCP-staðallinn en hann býður upp á þjónustur sem hraðaflæðisstjórnun (e. flow control), teppustjórnun (e. congestion control) og villufrían gagnaflutning (e. error free data transfer). UDP-staðallinn sem er sambærilegur við TCP býður ekki upp á þessar þjónustur. Hugbúnaðarhönnuður sem kýs að nota UDP getur, ef hann vill og telur þörf á, útfært einhverjar af þjónustunum sem TCP býður upp á í forritalaginu.
TCP er notað af mörgum samskiptastöðlum, t.d. þeim algengasta á netinu, HTTP, bæði í útgáfu HTTP/1.1 og í HTTP/2 en ekki í nýjasta staðlinum HTTP/3 sem notar UDP í staðinn. Sá staðall hefur ákveðinn stuðning frá og með september 2019, í t.d. Google Chrome.[2][3] Ef eða þegar HTTP/3 tekur yfir þá minnkar notkun á TCP sem því nemur. Þar sem HTTP stendur á bak við mikinn meirihluta af notkun á TCP, er líklegt að TCP verði mun minna notað í framtíðinni.
Neðanmálsgreinar
breyta- ↑ TCP-samskiptareglur kv. ft. Geymt 29 apríl 2015 í Wayback Machine af Tölvuorðasafninu
- ↑ Cimpanu, Catalin (26. september 2019). „Cloudflare, Google Chrome, and Firefox add HTTP/3 support“. ZDNet. Sótt 30 október 2019.
- ↑ „HTTP/3: the past, the present, and the future“. The Cloudflare Blog (enska). 26. september 2019. Sótt 30. október 2019.