Elísabet Siemsen
Elísabet Siemsen (fædd 26. febrúar 1955) er íslenskur framhaldsskólakennari og fyrrverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík. Elísabet hóf kennaraferil sinn sem þýskukennari við Menntaskólann í Reykjavík en hóf störf við Fjölbrautarskólann í Garðabæ árið 1982 þar sem hún starfaði sem þýskukennari, forvarnarfulltrúi og síðar sem aðstoðarskólameistari og var settur skólameistari í eitt skólaár 2016 til 2017.[1] Elísabet tók við starfi rektors Menntaskólans í Reykjavík í nóvember 2017 af Yngva Péturssyni og sinnti því starfi til ársins 2022.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Varð rektor MR í stað þess að fara á eftirlaun - RÚV.is“. RÚV. 15. nóvember 2017. Sótt 20. október 2024.
- ↑ „Elísabet Siemsen skipuð í embætti rektors Menntaskólans í Reykjavík“. www.stjornarradid.is. Sótt 20. október 2024.